Fréttir
Þriðjudagur, 01. Apríl 2025 03:23 |
Nýr vefur |
Hér opnar nýr vefur helgaður lambakjötinu frá Ströndum og rannsóknum og vöruþróun á býlinu Húsavík í Steingrímsfirði. Nýtt efni mun bætast hér inn á næstu vikum. Fylgist því með! |
Lostalengjur |
Lostalengjur urðu til við þróun heima í Húsavík. Tilraunir með nýjungar í framleiðslu á reyktu áleggi gáfu þessa niðurstöðu. Hráefnið í framleiðsluna eru snyrtir kindavöðvar af ungum ám. Húsavíkuránum er slátrað hjá SAH afurðum á Blönduósi og keypt til viðbótar af sömu afurðastöð. Unnið er úr kjötinu heima í Húsavík. Nokkuð af hráefninu nýtist ekki í Lostalengjur en verið er að þróa vöru úr þeim hluta til að fullnýta það. Vöðvarnir eru marineraðir í aðalbláberjalegi og fleiru síðan reyktir við blöndu reykefnis, sem er framleiðsluleyndarmál. Varan er að svo búnu þurrkuð, pökkuð og seld kæld eða fryst eftir atvikum. Í raun eru ekki notuð nein ný hráefni eða tæki við þessa framleiðslu. Bara þekkt hráefni notuð á nýjan hátt. Í tillögum að framreiðslu er gert ráð fyrir að nota Lostalengjurnar aðallega í forrétti og smárétti t.d. í móttökum. Til að byrja með er áætlað að framleiða aðeins úr því hráefni sem fellur til í Húsavík. Í framhaldi af framleiðslu Lostalengja var ákveðið að vera með lambakjöt til sölu fyrir heimamarkað. Lömbunum er slátrað í Sláturhúsi SAH afurða á Blönduósi. Bæði verður hægt að fá kjöt í heilum og hálfum skrokkum, hangikjöt og einstaka skrokkhluta. |